
Upplýsingar og reglur
Þríþrautarfélagið Ægir3 stendur fyrir ólympískri þríþraut í Reykjavík í sumar og eru hér nytsamlegar upplýsingar og reglur tengdar keppninni.
Reglur
Ólympísk þríþraut er hluti af stigakeppni Þríþrautasambands ÍSÍ og keppt er eftir reglum sambandsins sem má sjá hér.
Við minnum sérstaklega á eftirfarandi:
-
Blautbúninga-, sundhettu- og hjálmaskylda er í keppninni.
-
Heimilt er að nota neoprene-sokka og neoprene-húfu samkvæmt reglum ÞRÍ. Hefðbundnir neoprene open water hanskar (hámark 3–5 mm) eru leyfðir.
-
Skila skal tímatökuflögu og keppnisnúmeri strax að keppni lokinni.
-
Bannað er að keppa með tónlist eða heyrnartól í öllum greinum.
-
Bannað er að henda rusli utan skilgreindra ruslasvæða.
-
Hjóla skal hægra megin á brautinni og fylgja fyrirmælum dómara og brautargæslu.
-
Framúrakstur á hjólalegg er eingöngu leyfður vinstra megin.
-
Aldurstakmark í ólympískri þraut er 18 ár miðað við fæðingarár.
-
Allir keppendur taka þátt á eigin ábyrgð. Sérstaklega er bent á að synt er í köldum sjó og keppendur skulu hafa reynslu af slíku.
Mikilvægar reglur á hjólalegg
Mount- og dismount-lína
Keppendur skulu leiða hjólið sitt út úr skiptisvæðinu og mega ekki fara á hjólið fyrr en komið er yfir mount-línu.
Við lok hjólaleggjar skal fara af hjólinu fyrir dismount-línu og leiða hjólið inn á skiptisvæðið.
Brot á þessari reglu getur varðað tímavíti.
Hjálmur
Hjálmur skal vera rétt spenntur áður en hjólið er tekið af rekka.
Óheimilt er að losa hjálm eða taka hann af fyrr en hjólinu hefur verið komið aftur á rekka í skiptisvæðinu.
Non-drafting
Ólympísk þríþraut er non-drafting keppni.
Það þýðir að:
-
Halda skal að lágmarki 12 metra bili frá næsta keppanda.
-
Framúrakstur skal alltaf fara fram vinstra megin.
-
Keppandi sem tekið er fram úr skal tafarlaust falla út úr dragsvæði þess sem tók fram úr.
-
Óheimilt er að nýta sér skjól annarra keppenda eða ökutækja.
Brot gegn þessum reglum getur varðað tímavíti.
Refsibox
Keppendur sem fá tímavíti frá dómurum skulu stöðva í Refsiboxi (Penalty Box) á þeim stað sem kynntur verður á keppnisfundi.
Keppendur bera sjálfir ábyrgð á að stöðva í refsiboxi þegar dómari hefur gefið til kynna að þeir hafi fengið tímavíti.
Öryggi í sjó
Synt er í sjó þar sem hitastig, ölduhæð og straumar geta breyst með litlum fyrirvara.
Keppendur skulu:
-
hafa reynslu af sundi í köldum sjó,
-
fylgja fyrirmælum öryggisstarfsmanna,
-
yfirgefa sundlegg tafarlaust ef dómarar eða öryggisstarfsmenn gefa fyrirmæli um það.
Mótsstjórn áskilur sér rétt til að stytta sundlegg, breyta honum eða fella hann niður ef öryggi keppenda krefst þess.
Hegðun keppenda
Keppendur skulu sýna öðrum keppendum, sjálfboðaliðum, dómurum og áhorfendum kurteisi og virðingu.
Óíþróttamannsleg hegðun eða vanvirðing gagnvart fyrirmælum dómara getur varðað tímavíti eða frávísun.
Upplýsingar
KEPPNISHALDARAR
Þríþrautarfélagið Ægir3 heldur keppnina.
AFHENDING KEPPNISGAGNA
Keppnisgögn verða afhent á keppnisfundi laugardaginn 4. júlí kl. 10:30-11:30 í Kletti við Skarfaklett (við Klettagarða 8-10). Það er skyldumæting á keppnisfundinn. Þau sem komast ekki á fundinn verða að láta vita sem fyrst með því að senda póst á aegir3@gmail.com. Á fundinum verður hægt að nálgast númerið sitt og tímatökuflögu frá timataka.net. Á keppnisfundinum verður farið ítarlega yfir leiðina og einnig hægt að spyrja keppnisstjóra spurninga. Í kjölfarið á keppnisfundinum verður brautarskoðun þar sem hlaupabrautin verður hjóluð rólega og svo sundbrautin synt fyrir þau sem hafa áhuga. Fólk er á eigin ábyrgð í brautarskoðuninni og athugið að engin gæsla verður þá í sundbrautinni. Áætlað er að brautarskoðun hefjist klukkan 12:00.
BRAUTARGÆSLA OG ÖRYGGISMÁL
Sjálfboðaliðar og brautarverðir verða staðsettir við snúningspunkta, gatnamót og aðra staði þar sem sérstaks öryggis er þörf.
Öryggisgæsla á sundleið verður í höndum björgunarsveitar, björgunarbáta, kajaka og öryggisfólks á landi.
Þrátt fyrir lokanir á Sæbraut skulu keppendur ávallt fylgja fyrirmælum lögreglu, brautargæslu og dómara.
DÓMARAR
Dómarar frá Þríþrautasambandi Íslands sjá um framkvæmd keppnisreglna.
SKRÁNING
Skráning er bindandi og skráningargjöld eru ekki endurgreidd.
Mótsstjórn áskilur sér rétt til að breyta brautum, stytta eða fella niður sundlegg eða aflýsa keppni ef veður eða öryggisaðstæður krefjast þess.
VERÐLAUN
Veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í karla- og kvennaflokki.
Í boðþraut verða veitt verðlaun fyrir þrjú efstu liðin.
TÍMAMÖRK
Mótsstjórn áskilur sér rétt til að stöðva keppendur sem ná ekki eftirfarandi tímamörkum:
-
Sund: innan 50 mínútna frá ræsingu.
-
Hjól: innan 2 klst. og 45 mínútna frá ræsingu.
-
Mark: innan 4 klst. frá ræsingu.
Ef sundleggur er styttur eða felldur niður verða tímamörk endurskoðuð og kynnt sérstaklega.
KEPPNISLÝSING
Ræst verður í sjónum við Skarfaklett kl. 08:00.
Sundið er 1.500 m (3 hringir). Eftir hvern hring er hlaupið upp úr sjónum og í kringum keilu áður en næsti hringur hefst.
Að sundi loknu er hlaupið að skiptisvæðinu þar sem blautbúningur er skilinn eftir við hjólið. Keppendur setja á sig hjálm og númerabelti þannig að númerið snúi aftur á hjólalegg.
Mótsstjórn getur krafist þess að keppendur fari í yfirhöfn áður en lagt er af stað á hjólinu ef hitastig sjávar og lofts gefur tilefni til.
Hjólið er leitt yfir mount-línu áður en sest er á það og farið af hjólinu fyrir dismount-línu við lok hjólaleggjar. Hjólað 40 km á Sæbraut sem verður lokuð fyrir umferð.
Fyrir hlaup er númerabeltinu snúið þannig að númerið sjáist framan á keppandanum.
Hlaupaleiðin er 10 km samkvæmt merktri braut og mark er við skiptisvæðið.
RÆSING
Keppni hefst kl. 08:00.
KEPPNISFUNDUR
Skyldukeppnisfundur verður laugardaginn 4. júlí í Kletti við Skarfaklett. Tímasetning auglýst fljótlega.
HJÓLASKOÐUN
Hjólaskoðun fer fram frá 06:30–07:20.
Keppendur skulu mæta með hjól og hjálm til skoðunar.
SKIPTISVÆÐI
Skiptisvæðið verður á grasfletinum við húsnæði Veitna á Skarfabakka.
Skiptisvæðið opnar kl. 06:30 og lokar kl. 07:20.
Enginn má fara inn á skiptisvæðið eftir þann tíma nema með leyfi yfirdómara.
Búningatjöld verða á keppnissvæðinu fyrir keppendur.
DRYKKJARSTÖÐVAR
Tvær drykkjarstöðvar verða á hlaupaleiðinni, staðsettar við miðpunkt brautarinnar.
VERÐLAUNAAFHENDING
Verðlaunaafhending fer fram kl. 12:00 við skiptisvæðið.
HITASTIG SJÁVAR
Gera má ráð fyrir að hitastig sjávar verði 11–15°C.
Hitastig verður mælt fyrir keppni og niðurstöður kynntar á keppnisfundi.
Við ákvörðun um breytingar á sundlegg verður stuðst við hitastig sjávar og lofts samkvæmt reglum ÞRÍ.
Mótsstjórn getur krafist þess að keppendur fari í yfirhöfn á hjólalegg ef aðstæður krefjast þess.


