top of page

Lög Þríþrautarfélagsins Ægir3

 

1. grein

Félagið heitir Ægir3 - Þríþrautarfélag Reykjavíkur. Heimili félagsins og varnarþing er í Reykjavík.

 

2. grein

Markmið félagsins er að vinna að eflingu og ástundun þríþrautar; sundi, hjólreiðum og hlaupum.Markmiðum þessum hyggst félagið ná með æfingahaldi og þjálfun í viðkomandi greinum, keppnisþátttökuí þeim, kynningu og útbreiðslu íþróttarinnar, grasrótarstarfi svo sem keppnishaldi, samheldni félagsmannameð áherslu á uppbyggileg samskipti og gagnkvæma virðingu, heiðarlega keppni og öflugu félagslífi,ásamt öflun fjár til stuðnings starfsemi félagsins.

 

3. grein

Félagið er opið öllum, sem vilja stuðla að framgangi þríþrautar og vinna að markmiðum félagsins enfullgildir félagsmenn eru þeir sem greiða æfingagjöld til félagsins. Atkvæðisrétt og kjörgengi hjá félaginuhafa eingöngu fullgildir félagsmenn, sem eru skuldlausir við það og hafa verið í félaginu lengur en 3mánuði.

 

4. grein

Stjórn félagsins ákveður upphæð æfingagjalda ásamt tilhögun æfinga og tilkynnir fyrir upphaf æfingaársár hvert. Æfingar geta þeir einir stundað hjá félaginu sem eru fullgildir félagsmenn. Undanþága frá þeirrireglu er í höndum stjórnar hverju sinni. Stjórn félagsins ákveður hvenær æfingaárið byrjar.

 

5. grein

Stjórn félagsins getur gefið út keppnisheimild til einstaklinga utan félagsins, sem gefur viðkomandikeppnisrétt fyrir hönd Ægir3. Viðkomandi eru ekki fullgildir meðlimir Ægir3 og hafa þar með hvorkiatkvæðisrétt hjá félaginu né eru þeir kjörgengir (skv. 3.gr.).

 

6. grein

Stjórn félagsins skipa sjö manns. Stjórn skal kosin á aðalfundi félagsins. Kjörnir stjórnarmeðlimir raða íhlutverk formanns, varaformanns, gjaldkera, ritara og meðstjórnenda. Kjörtímabil er eitt ár. Ennfremurskal kjósa skoðunarmann reikninga til eins árs í senn.

 

7. grein

Stjórn hefur heimild til niðurfellingar æfingagjalda til fullgildra félagsmanna sem umbun fyrir einhverja þávinnu sem viðkomandi vinnur fyrir félagið.

 

8. grein

Félagsfund skal halda þegar stjórn félagsins ákveður eða þegar minnst 25% félagsmanna krefjast þess ogskal til hans boða með rafrænum hætti með minnst þriggja daga fyrirvara.

 

9. grein

Reikningsár félagsins er almanaksárið.

 

10. grein

Aðalfund skal halda fyrir 30.apríl ár hvert og er boðað til hans rafrænt.Til aðalfundar skal boða með minnst 10 daga fyrirvara og er hann lögmætur sé löglega til hans boðað.Löglega er boðað til aðalfundar með sannanlegri tilkynningu til allra félagsmanna.Á aðalfundi skal vera fundarstjóri og skráð fundargerð af fundarritara.Dagskrá fundarins skal fara út með fundarboði.Tillögur um lagabreytingar skal leggja fyrir stjórn minnst viku fyrir aðalfund og skal stjórn jafnharðankynna fyrirliggjandi breytingatillögur fyrir félagsmönnum.Einfaldur meirihluti ræður úrslitum allra mála nema lagabreytinga. Tvo þriðju hluta atkvæða þarf til aðbreyta lögum.

​

11. grein

Stjórn hefur heimild til að vísa einstaklingi úr félaginu ef viðkomandi verður uppvís að háttsemi semvinnur gegn markmiðum félagsins eða brýtur í bága við lög þess.

 

12. grein

Samþykki stjórnarfundar og síðan 2/3 hluta greiddra atkvæða aðalfundar þarf til að félagið verði lagtniður. Verði það samþykkt, skal eigum þess ráðstafað í þágu þríþrautarinnar samkvæmt nánari ákvörðunþess aðalfundar.Taka skal sérstaklega fram í fundarboði ef tillaga um slíkt liggur fyrir aðalfundi.

 

Þannig samþykkt á aðalfundi 17. mars 2019. Breyting á 6. grein laga og samþykkt á aðalfundi félags, þannig að stjórnarmeðlimir fóru úr fimm yfir í sjö

​

bottom of page