Einstaklings keppni og boðþraut
Hægt er að keppa annað hvort sem einstaklingur eða lið í ólympískri þríþraut í Reykjarvíkurþrautinni. Ef valið er að keppa sem lið geta allt að 3 einstaklingar skipt með sér þrautum þar sem t.d. einn syndir, annar hjólar og þriðji hleypur. Í boðþraut verða veitt verðlaun fyrir efstu þrjú sætin.



Keppnisbrautin
Reykjarvíkurþrautin býður upp á einstaka keppnisupplifun í hjarta höfuðborgarinnar þar sem sjór, borg og stígar mynda glæsilega umgjörð. Sundið fer fram á Skarfabakka á vel afmörkuðu svæði með stuttum hringjum nálægt landi. Hjólað er eftir hraðri og flatri braut á Sæbrautinni þar sem keppendur njóta víðáttumikils sjávarútsýnis og góðs malbiks nánast alla leiðina. Hlaupaleiðin liggur um stíga meðfram sjó, framhjá Hörpu og um hafnarsvæðið, þar sem áhorfendur geta fylgst með keppendum á mörgum stöðum. Brautin er afar hröð og hentar jafnt þeim sem stefna á persónulegan árangur og þeim sem vilja njóta þess að keppa í lifandi borgarumhverfi.
Sundið
Í sjónum eru þrjár baujur sem mynda 500 metra hring. Syntir eru þrír hringir, samtals 1500m

Hjólið
Hjólað er um hraða og flata braut meðfram strandlengju Reykjavíkur þar sem sjávarútsýni og borgarumhverfi setja svip sinn á keppnina. Leiðin liggur frá skiptisvæðinu við Skarfabakka eftir Sæbraut í átt að Hörpu og þaðan til baka að snúningspunkti við Kleppsveg. Hringurinn er hjólaður fimm sinnum á góðu malbiki sem býður upp á jafnan hraða og góða möguleika til að halda uppi takti. Brautin er nánast öll flöt og því tilvalin fyrir þá sem vilja ná góðum tíma á hjólinu og njóta jafnframt einstaks útsýnis yfir Faxaflóa og borgina.

Hlaupið
Hlaupaleið Reykjarvíkurþrautarinnar er hröð og skemmtileg og liggur meðfram sjónum og hafnarsvæði í hjarta Reykjavíkur. Frá skiptisvæðinu við Skarfabakka er hlaupið að vitanum við Skarfaklett og þaðan meðfram Sæbraut í átt að Hörpu. Leiðin fer framhjá einu helsta kennileiti borgarinnar áður en hlaupið er um svæðið við Hörpu og Landsbankahúsið og síðan sömu leið til baka. Brautin er nánast öll á góðum göngu- og hjólastígum, með aðeins um 20 metra samanlagðri hækkun á 10 km leið. Áhorfendur geta fylgst með keppendum á mörgum stöðum á leiðinni og skapað frábæra stemningu allt til marksins við skiptisvæðið.
.jpg)


